
Trek ferðir býður ykkur velkomin út í nátturu Íslands, land eldar og ís og stórbrotinnar nátturufyrirbæra
Við erum fullgildir ferðaþjónustuaðilar. Við setjum staðalinn hátt og bjóðum viðskiptavinum aðeins upp á framúrskarandi þjónustu og vinalegt viðmót.
Stofnendur fyrirtækisins eru félagarnir Arnar Felix Einarsson og Atli Pálsson. Saman og í sitthvoru lagi hafa þeir farið í naflaskoðun á Íslandi og þekkja nær hvern krók og kima á landinu og hafa þeir í sameiningu náð að draga það besta úr náttúrunni og setja saman í skipulagðar ferðir sem lesa má betur um hér á heimasíðunni. Báðir eru þeir þaulreyndir fjallagarpar sem finnst fátt skemmtilegra en að ferðast um landið ýmist á tveimur gangandi, fjórum hjólum eða skíðandi.
Trek ferðir er fyrirtæki með áherslu á gönguferðir við allra hæfi og eru ferðir okkar byggðar upp þannig allir eiga tækfæri að kljást við verkefni miðað við getu. Við erum lítið fyrirtæki, sem gerir okkur kleift að gefa hverjum einum viðskiptavini persónulega og vingjarnlegur þjónustu. Eins og nafn okkar gefur til kynna sérhæfum okkur í gönguverðum og er okkar leiðsögn persónuleg og hentar því vel fyrir smærri hópa. Hver ferð er farinn með faglegum leiðsögumönnum okkar og getum við boðið uppá fjallgöngur, gönguskíðaferðir klifur, ísklifur, hellaferðir og ýmis önnur ævintýri um allt á Ísland.
Okkar reyndu leiðsögumenn hafa það að leiðarljósi að passa 100% upp á öryggi okkar viðskiptavina allan tímann. Okkar markmið er að vera með ánægjulegar og krefjandi ferðir við allra hæfi en það má aldrei, sem koma öllum örugglega heim aftur. Íslenskt veðurfar og spilar stóran þátt og því er mikilvægt að við séum sveiganlegir í okkar ferðaskipulagi þannig að ferðirnar henti réttum árstíma.
Hvert sem ferðinni er heitð á Íslandi getur þú látið okkur skipuleggja ferðina. Frá lúxus skoðunarferðum til erfiðra jöklaferða höfum við reynsluna til þess að þjónusta þig.








