Flýtilyklar
Flokkar
-
Toppaferðir
Lesa meiraTREK ferðir bjóða upp á ýmsar toppaferðir upp á vinsælustu fjallstinda Íslands. Það er ýmist lagt af stað frá Reykjavík eða þeirri staðsetningu sem gefinn er upp í upplýsingum um hverja ferð. Við bjóðum upp á sértilboð fyrir fyrirtæki og aðra hópa. Einnig bjóður við upp á ókeypis undirbúningsfundi fyrir slíka hópa. Í öllum ferðum er sérstakur útbúnaður svo sem ísaxir, mannbroddar og klifurbelti innifalið í verði ásamt leiðsögn með reyndum fjallaleiðsögumönnum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á trek@trek.is
-
Utanlandsferðir
Lesa meiraTrek ferðir býður upp á spennandi utanlandsferðir til nokkura áfangastaða um heiminn, þ.á.m. Nepal, Afríku, Alpana og fleiri staði.
-
Skíðaferðir
Lesa meiraSkíðamennska er skemmtilegur ferðamáti sem gerir fólki kleift að ferðast nokkuð hratt á milli staða í snjó. Trek ferðir bjóða upp á skipulagðar og sérsniðnar skíðaferðir fyrir hópa og einstaklinga. Leiðsögumenn hjá Trek ferðum eru reyndir skíðamenn bæði á fjalla- og gönguskíðum því bjóðum við upp á ferðir í öllum flokkum skíðamennsku hvort sem það er á gönguskíðum yfir sléttur eða á fjallaskíðum um tinda landsins.
-
Útivistarnámskeið
Lesa meiraTil þess stunda útivist á Íslandi er mikilvægt að kunna að bjarga sér og hafa grunnþekkingu á ýmsum þáttum útivistar, margt lærist með reynslunni en auðveldara getur verið að auka þekkingu með því að taka námskeið. Það eykur öryggi og ánægju að vita hvert á að fara og hvað á að gera ef eitthvað kemur uppá í ferðum okkar um landið. Því bjóðum við hjá Trek ferðum upp á námskeið í rötun að læra á áttavita, kunna að læra að lesa á kort og nota GPS, ferðamennska á fjöllum hvernig skal klæðast miðað við mismunandi ferðir, fjallamennska að vetri - að læra að ferðast að vetri til á Íslandi. Við kennum einnig að vaða straumvötn, notkun fjarskiptatækja á fjöllum, við kennum einnig hvernig skal hátta sig að við undirbúning lengri bakpokaferða og leiðangra yfir landið og margt fleira.







